Hver brautin af fætur öðru hefur verið lokuð í Belgíu í kjölfar málsóknar umhverfissinna og er virkilega ástæða til að fylgjast með stöðu mála í Belgíu því töluverðar líkur eru á að þau rök sem umhverfissinnar hafa beitt fyrir sig til að ná í gegn lokun á brautum þar munu að öllum líkindum verða notuð annar staðar í Evrópu. Já, þetta er sorgleg staðreynd að þrýstihópur umhverfissinna skuli berjast fyrir því að svæði sem er sérhannað fyrir motocrossökumenn skuli vera lokað á þeim forsendum að hávaða og mengandi starfsemi sé um að ræða. Við erum að tala um brautir sem eru að meðaltali um 1,6 km. hringurinn og þessi hópur sem fyrir margar sakir er einfaldlega öfgahópur í orðsins fyllstu töluðu. Sorglegt að umhverfissinnar skuli líta á ökumenn motocrosshjóla sem óvini númer eitt og þá sérstaklega aðila sem hafa nýtt sér lokaðar brautir sem eru að ofangreindri stærð. Þetta gæti kallað á það að aðilar í sportinu hætti að virða öll lög og reglur um höft og bönn og ákveði að keyra einfaldlega þar sem þeim lystir í mótmælaskyni og þar með á miklu viðkvæmari svæðum en áður fyrr. Já, stundum er það einfaldlega þannig að hópur einstaklinga sem réttlætir allt í nafni málstaðarins veit ekki "jack shit" og gerir allt sem hann getur til að hafa áhrif á aðra "no matter what", en réttlætir svo ofbeldisaðgerðir í "nafni réttlætisins" að eigin mati þar sem öll lög má brjóta fyrir málstaðinn en ef hjólamenn gera svo mikið sem eitt stykki af sér, að þá hrópa þessir hópar hvað hæst í því skyni að koma böndum á hjólamenn.
Ég sé ekki umvherfissinna ráðast gegn stóru fótboltaklúbbum í Evrópur þar sem tugþúsundir aðdáenda koma saman til að njóta íþróttarinnar með tilheyrandi mengun um að koma sér til og frá keppnisstað + sóðaskapar sem því fylgir. Nei, um að gera að ráðast á fámennari hóp sem hefur mjög einfaldar líffskoðnir og eru einfadlega sáttir við að geta sett smá bensínlögg hjá tuggurnar til þessa eins og lifa lífinu lifandi. En það kemur að því að þessi aðgerðarsinnar sem margir hverjir koma úr vernduðu umvherfi og hafa aldrei migið í saltan sjó munu beina augum sínum að öðrum íþróttum eins og t.d. knattspyrnu o.fl. þar sem aðddáendur þurfa á farartækjum að halda til að geta notið slíkra kappleikja. Já, þið sem sofið á verðinum núna og samþykkið þessa gjörninga í því skyni að þetta snerti ykkur ekki þar sem þetta er ekki boltaíþrótt, ættuð að vakna upp af ykkar þyrnirósarsvefni sem allra fyrst. Því um leið og þessir hópar hafa lagt eina hindrunina að velli, að þá einbeita þeir sér að því næsta og bráðum verður allt bannað og allir að skeina sér í þríriti fyrir VG sem þarf að skoða innihald fæðunnar til að meta hvort hún var lífræn eða ekki.