Antonio Cairoli er eitthvað tvístígandi yfir hvort hann eigi að halda áfram keppni á 350 hjólinu frá KTM eða fara yfir á nýjasta nýtt, þ.e. 450 hjólið sem er með beinni innspýtingu og er það hjól sem Ryan Dungey er að nota núna. Tony Cairoli hefur unnið tvo heimsmeistaratitla á 350 hjólinu þó svo að margir vilja meina að hann hafi haft meistaraheppnina með sér í ár og er ég einn af þeim, þó svo að ég sé mikill aðdáandi Tony Cairoli. Heppnin fólst í því að helstu keppinautar hans féllu nánast allir úr leik vegna meiðsla og má þar fremst nefna Clément Desalle, Steven Frossard, David Phillippaerts o.fl. Miðað við það sem ég sá framan af, að þá virtist Clément Desalle vera sterkastur og myndi í það minnsta veit Tony Cairoli verðuga keppni í ár en því miður datt hann út. Steven Frossard sýndi góða takta en átti við meiðsli að stríða frá miðju tímabili sem höfðu áhrif og einnig slasaði Tony Cairoli sig lítillega í byrjun. Ef Tony Cairoli velur 450 hjólið, að þá geri ég ráð fyrir því að við eigum eftir að sjá það hverfa af sjónarsviðinu í MX1 flokknum sem keppnishjól þó svo að það haldi hugsanlega áfram að vera vinsælt hjól hjá þeim sem vilja meira en 250 en eru ekki alveg tilbúnir til að berjst við 450 hjól. Max Nagl mun að öllum líkindum fara yfir á 450 hjól fyrir komandi tímabil.