Já, vetur er greinlega genginn í garð og hitastigið fór úr 11°C í - 7°C á nokkrum dögum. Einnig hefur kyngt nokkuð af snjó hér vestanlands, þó svo að nokkuð vanti upp á það sem hefur snjóað í öðum landshlutum. Sumir leggjast í dvala yfir vetramánuðina og sérsaklega þegar frostið ræður ríkjum, en það er algjör óþarfi. Hægt er að gera sér margt til dundurs í snjónum og sumum þykir fátt skemmtilegra en að fara í endurotúr við þessar aðstæður á meðan aðrir taka upp á að stunda ísakstur við mikinn móð. Það er þessi hópur, þ.e. hópurinn sem hefur áhuga á íscrossi, sem hefur ákveðið að koma saman á morgun, laugardag, á Hvaleyravatni og rifja upp taktana frá síðasta vetri. Ísinn er með besta móti og er orðin nógu þykkur til aksturs. Ég bið samt menn að fara varlega því víða geta leynst vakir. Harða gengið verður á svæðinu og þekkja vel til og mælist ég til að menn virði þeirrar skoðunar á málunum þarna og keyri á því svæði sem þeir telja öruggt. Fyrir þá sem hafa ekki prófað eða hafa ekki kynnt sér málið, að þá er tilvalið að renna upp á vatnið og sjá hvernig menn bera sig að. Mæting er um hádegi.
Margir hverjir setja fyrir sig kostnaði við íscrossið en hann er í raun ekki mikill. Startið getur tekið í og getur dekkaumgangurinn kostað um 80 þúsund og ádrepari um 10 þ.kr. Mæli með Gunnars Killer þegar valið stendur um ádrepara. Mjög áreiðanlegur og endist vel. En ef það er litið á hversu lengi þú getur keyrt dekkjunum + það að ádreparinn endist lengi, að þá eru ökumen hugsanlega að fara með einn dekkjaumgang á 3-4 ára fresti og það miðast við nokkra notkun en eingöngu keyrt á ís. Ekkert endurobrölt á því því þá fara dekkinn fljótt. Ef við deilum þessum kostnaði niður til þriggja ára, að þá erum við að tala um 30 þ.kr. fyrir veturinn sem er nú ekki neitt voðalegt. Fyrir þá sem vilja ekki kaupa sér fullbúinn dekk að þá býður Klettur upp á ágætis lausn sem eru skrúfur. Eru þetta bestu skrúfur sem hægt er að fá til ísaksturs og endast mjög vel. Skrúfurnar eru svo sem ekki gefins en kosturinn við þær að þú getur flutt þær á milli dekkja ef eitt dekkið eyðist + að þú getur bætt í ef skrúfa dettur úr.
Endilega að kíkja upp á Hvaleyravatn á morgun og hafa gaman af því að veitur konungur sé genginn í garð. Hér má sjá Eið Orra, einn mesta töffarann í sportinu, taka forskot á sæluna um daginn.
