Það er greinilegt að menn eru að spýta í lófana hjá Suzuki og nú hefur enn einn meðlimurinn gengið til liðs við Suzuki. Það er enginn annar en Jónas Stefánsson sem hefur verið Mr. Green síðustu ár og keppt á Kawasaki. Jonni, eins og hann er kallaður, er óþreytandi þegar kemur að keppnisstandi og ef það heitir keppni, að þá mætir hann. Jonni er jafnframt með okkar fremstu ökumönnum í snjócrossi á snjósleðum og mikill akkur yfir Suzuki að fá Jonan til liðs við sig. Nú er spurningin hvort að systir Jonna, Signý Stefánsdóttir, fylgi með og verði orðin gul fyrir næsta tímabil. Óska Jonna og Suzuki til hamingju og hlakka til að sjá Jonna gulan í sumar.