Wednesday, 16 November 2011 15:49

Yamaha kynning á föstudaginn hjá Arctic Trucks

Written by 

Arctic Trucks verður með kynningu á nýju Yamaha FX Nytro snjósleðunum árgerð 2012 ásamt því að sýna nokkra af kraftmestu snjósleðum landsins og einnig keppnishjól í motocrossi.  Af því tilefni, að þá verður 240 þ.kr. afsláttur af motocrosshjólum ef pantað er fyrir 15 desember eins og sést í auglýsingu með þessari tilkynningu og munar nú aldeilis um minna.  Umsögnin í nýjasta Motocross Action Magazine um t.d. YZ450 hjólið var á þessa leið.  "The Yamaha YZ450F has the best suspension period.  End of story".  Yamaha hefur áunnið sér gott orð fyrir áreiðanleika og þessi orð hafði Motocross Action Magazine um hjólið í testi um daginn.  "Reliability.  If a bike can be broken, the MXA wrecking crew will break it.  Of all the 450cc motocross bikes sold, the YZ450F is the most reliable.  If you are looking for a trouble-free race bike that runs and runs and runs, the YZ450F is the best bike for you".  

Svo er bara um að gera að mæta á svæðið skoða nýtt dót sem er aldrei leiðinlegt ásamt að þiggja léttar veitingar.  Sýningin byrjar kl.18 og er til kl.20.

Read 380 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 01:03