Það sem margir eru komnir í viðhaldsgírinn og farnir að huga að hjólunum eftir tímabilið, að þá er ekki úr vegi að setja þetta myndband í loftið sem sýnir hvernig þú átt að hreinsa ventlana í hjólinu. Að vísu sakna ég þess í þessu myndbandi að sjá hvernig hann tekur þá úr og setur þá í aftur en engu að síður mjög einfalt tipps frá Pro Circuit hvernig þeir hreinsa ventlana. Þó svo að tímabilið sé formlega lokið, að þá er ennþá hægt að hjóla í flestum brautum landsins og mælist ég til við fólk að það leggist nú ekki alveg í hýði þó svo að dagatalið segi að komið sé fram í miðjan nóvember. Það var 9 stiga hiti í morgun á mælinum og er ekki á hverjum degi sem maður sér slíkar tölur. Brautir eins og MotoMos, Bolaalda, Sólbrekka og Þorlákshöfn eru í toppstandi miðað við árstíma og eru upp á sitt besta því rakastigið er nóg og gripið geðveikt. Alla vega voru menn gífurlega ánægðir sem hjóluðu um helgina og voru í skýjunum yfir hversu gott ástandið var þar sem þeir voru að hjóla. Jæja, en höldum áfram að spá í þessa ventla. Hérna er myndbandið um hvernig þeir gera þetta hjá Pro Circuit.