Bæjarráð hefur heimilað bæjarstjóra að ganga frá samningi við MotoMos um afnot af landsvæði til akstursíþrótta. Samningurinn er til fimm ára og verður skipulag svæðisins unnið í samstarfi við Mosfellsbæ, sérstaklega útfærsluatriði er varða hljóðvist, útlit, aðkomu o.fl.
Í staðinn fyrir afnot landssvæðisins mun MotoMos standa fyrir öflugu fræðslu- og kynningarsamstarfi, m.a. um:
- að akstur mótorhjóla sé bannaður á göngu- og reiðstígum bæjarfélagsins.
- að sporna gegn utanvegaakstri mótorhjóla og sömuleiðis akstri innanbæjar á torfæruskráðum hjólum.
- að setja reglur sem banna akstur á vélhjólum, með torfæruskráningu, til og frá aksturssvæðinu. Slík hjól skulu flutt á flutningstækjum.
Haraldur Sverrisson bæjarstjóri, segir það mjög ánægjulegt að búið sé að finna svæði fyrir þessa ört vaxandi íþróttagrein hér í bæjarfélaginu og að hún fái tækifæri til að vaxa og dafna. Einnig sé það afar mikilvægt að samningurinn sé rammi utan um þessa íþróttagrein.
Þetta kemur fram í Mosfelling sem kom út í dag, 14/3.