Thursday, 10 November 2011 09:37

Allt að gerast í rafmagnshjólum fyrir áhugamenn um torfæruhjól

Written by 

Nú er hver framleiðandinn á fætur öðrum að koma með nýjungar í rafmagnshjólum og greinilegt að það hefur orðið veruleg vakning þeirra meðal hvað þennan orkugjafa varðar.  Hingað til hafa þetta verið örfáir aðilar og aðilar sem hafa verið í jaðrinum hvað varðar framleiðslu á hjólum en nú eru stóru framleiðendurnir farnir að horfa meira og meira til slíkra hjóla.  Eru það fyrst og fremst evrópskir framleiðendur sem hafa stigið fram á völlinn í samkeppninni að framleiða hjól sem uppfyllir kröfur notandans og þeirra sem sjá öllu til forráttu er kemur að hjólum.  Samhliða því að KTM setti fram á sjónarsviðið KTM 350 Freeride, að þá kom út E útgáfa af því hjóli sem þýðir að það er knúið rafmagni eingöngu.  Þetta hjól er hægt að kaupa í dag erlendis og spurningin er hvort að þetta hjól verði í boði fyrir áhugasama hjá umboðsaðila KTM á Íslandi og einnig hvert ætli verðið sé á svona tæki út úr búð?  Nú hefur Sherco bæst í hópinn og verð ég að segja það að á myndum sem ég sá á síðunni hjá Binna Morgan, www.morgan.is, að mér finnst þetta hjól hvað mest aðlaðandi í fyrstu sýn og þá sérstaklega fyrir bláa litinn smiley  Þetta hjól frá Sherco er að vísu endurohjól, en engu að síður mjög í takt við hefðbundna hönnun á þeim hjólum sem við þekkjum í dag og stingur hvað minnst í stúfana eins mörg önnur hjól frá öðrum framleiðendum.  Ég bjóst að vísu alltaf við að Japanir myndu leiða þessa þróun á hjólum þar sem þeir hafa verið leiðandi í framleiðslu á vélmennum til iðnaðar en lítið hefur sést til slíkra hjóla af þeirra hálfu en ég á ekki von á öðru en þegar þessi bolti fer að rúlla af stað af alvöru, að þá komi þeir með að stíga inn í leikinn og hefja þátttöku að fullum þunga.  Í mínum huga er þetta ekki orðið spurning hvort við eigum eftir að sjá svona hjól í keppni á Íslandi heldur hvenær.  Hér má svo sjá myndband frá KTM um KTM 350 Freeride E útgáfunni, þ.e. rafmagnshjólinu.

 

Read 711 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 01:03