Vill minna alla þá sem áhuga hafa á endurcrosskeppnina sem haldin verður í Sólbrekku á morgun. Um að gera að skrá sig og taka þátt. Það er ekki lítil vinna sem fer í svona dæmi og það helsta sem þessir gaurar vilja fá að launum er einfaldlega að fólk komi, taki þátt og hafi gaman af.
Dagskrá fyrir EnduroCrossið í Sólbrekku á laugardaginn er eftirfarandi:
10.30 Skoðun byrjar
11.30 Prufuhringur
12.00 Keppni byrjar
Skráningin er búinn að standa yfir í nokkra daga og er komin á skrið. Eru margir hörku ökumenn búnir að skrá sig. Lámarksfjöldi keppanda er 40 og eru menn vinsamlega beðnir að skrá sig sem fyrst svo skipuleggjendur geti græjað sig. Hægt er að skrá sig á vef VÍK, www.motocross.is.
Því miður fyrir mig og mína, að þá verðum við fjarri góðu gamni þar sem við hjónin þurfum bæði að vinna á morgun. Vonast eftir að heyra miklar hetjusögur af keppninni og af keppendum á árshátíð MSÍ.