Wednesday, 02 November 2011 15:57

Hver að verða síðastur að skrá sig í endurocrossið sem fer fram laugardaginn 5 nóvember

Written by 

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig til leiks í endurocross keppnina sem haldin verður í Sólbrekku þann 5 nóvember, þ.e. næsta laugardag.  Þar sem hin margrómaða "kreppukeppni" datt út í Þorlákshöfn, að þa er tilvalið að taka þátt í síðustu keppninni fyrir árshátíð MSÍ og kveðja árið með trukki.  Keppnin er á vegum VÍR og hafa Jói Kef og félagar lofað frábærri braut sem allir eiga að geta ráðið við en tryggt verður að nóg verður að hjáleiðum fyrir þá sem verða þreyttir eða leggja ekki í þrautirnar.  Keppt verður í tveimur flokkum, einmenning og tvímenning.  Keppnisgjaldið er mjög hóflegt, eða aðeins 4.000 kr. á mann fyrir einmennings flokkinn og 8.000 kr. fyrir lið í tvímenning.  Skráning er á vef motocross.is en hægt er að fara beint inn á skráninguna með að smella hér.  Að lokum má hér sjá myndband frá brautinni sem tekið var þegar verið var að leggja brautina.  KOMA SVO, HAFA GAMAN AF ÞESSU DÓTI!

 

Read 350 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 01:04