Loksins, loksins! Braut á suðvesturhorninu sem hægt er að hjóla í. En þó nokkrir brugðu undir sig betri fætinum í dag og hjóluðu í Sólbrekku. Það lék sælubros um mæðgurnar að komast í Sólbrekku í dag og ekki skemmti fyrir að sjá fleiri en okkur í sömu hugleiðingum. Nú hlýtur þetta að fara að styttast og Lóan komi með sitt "dírendí" til að reka burt snjóinn...:o) Brautin er drullug á köflum og á nokkrum stöðum er hún töluvert grýtt og sprengdu nokkrir hjá sér dekkinn fyrir vikið, en að öðru leyti voru allir þeir sem hjóluðu í dag ánægðir með brautina. Enda hefur verið dágóður tími síðan hægt var að hjóla í braut hér á flatlendinu. Þannig að ef menn vilja hjóla, að þá er bara að kaupa miða í N1 og skella sér í Sólbrekku.