Tuesday, 06 September 2011 10:51

Harðjaxl.is - Daði "Skaði" lýtur í grass "big time", rifbeinsbrotnar en klárar samt keppni í þriðja sæti

Written by 

Já, hann Daði hefur stofnað nýjan vef sem heitir harðjaxl.is..:0)  En það er að verða frægt, alla vega hér á Íslandi, myndbandið af honum sem Morgan gengið náði þegar hann fer hressilega á granirnar í síðustu umferðinni í enduro sem fór fram á Sauðárkrók um helgina.  Greinilegt að maðurinn ber nafn með rentu, þ.e. Daði Skaði.  Það er alveg magnað að hann skuli rjúka beint á fætur og það fyrsta sem virðist komast að í kollinum á honum er að koma sér aftur á hjólið.  Ætli ég hefði hreinlega ekki legið eins og hrúgald og grenjað eins og stunginn grís ef ég hefði lent í þessu..:0)  Flestir eru líklegast búnir að sjá þetta á www.morgan.is eða á facebook, þannig að ég fékk góðfúslegt leyfi frá Binna Morgan (takk fyrir það Binni) að birta það hér líka svo ég sé nú ekki minni maður en hinar síðurnar en þetta er meira að segja komið inn á www.menn.is.  Þannig að Daði er orðin "heimsfrægur" á Íslandi.  Til lukku með það.

Read 628 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:22