Friday, 07 March 2008 23:44

Reynsluakstur á Suzuki RM-Z450 árgerð 2008

Written by 

Hef gaman að þýða þetta mér til dundurs á kvöldin og endurtek því gamla tuggu um að þetta er lausleg þýðing frá reynsluakstri ökumanna fyrir Motocross Action Magazine og hefur ekkert að gera með mitt persónulega álit á hjólinu.  Enda hef ég ekki ennþá séð slíkt hjól á Íslandi, þannig að ég er langt frá því að vera dómbær.  Hefst þá þýðingin...

Frá mannúðarsjónarmiði, að þá er eiginlega ekki hægt annað en að vorkenna Suzuki.  Fyrir 2008 árgerðina, að þá ákveðu þeir að kasta teningnum og veðja á beina innspýtingu fyrir 450cc hjólið sitt.  Djörf ákvörðun, ákvörðun sem gæti tryggt þeim sess í sögunni sem eitt það ævintýralegasta í flokki "big five".  Þessi ákvörðun virtist ætla að hafa mikil áhrif á sölur hjá Suzuki til hins betra og það var mikil umfjöllun um þetta hjól í öllum fagtímaritum.  Menn gátu ekki beðið eftir að sjá útkomuna.  Suzuki yrði þar með alla vega einu ári á undan Honda, Kawasaki, Yamaha og KTM með fyrsta fjöldaframleidda motocrosshjólið með beinni innspýtingu.
Því miður snerist þetta eiginlega í höndunum á Suzuki.  Tafir á framleiðslu vegna smágalla sem komu upp, sem leiddi einnig til tafir á afhendingu til söluaðila og þar með viðskiptavina.  Þessi tafir þýddu að söluaðilar Suzuki áttu ekki 450 hjól á gólfinu hjá sér lungað af aðalsölutímabilinu í bandaríkjunum sem er ágúst til desember.  Í staðin var endanleg kynning á Suzuki frestað þar til að stór hluti landsins var þakið snjó sem leiðir til þess að Suzuki framleiðir færri RM-Z450 hjól af 2008 en þeir gerðu 2007.

Hvað er svo nýtt við vélina í RM-Z450?

   1. Sveifrásin hefur verið komið fyrir um það bil 2mm aftar og 3mm neðar í vélarrúminu
   2. "Flywheel inertia" hefur verið stækkað um 1,7% með þyngri seglum
   3. "The port angel" hefur verið breytt frá 10 gráðum í 25 gráður
   4. Allt í kringum "cams" og "intake port" hefur verið minnkað en styrkt
   5. "Heddið" er með þrengra ventlasviði og hallin á ventlunum hefur verið breytt
   6. "The head pipe" er úr títaníum, miðpípann úr burstuðu stáli og hljóðkúturinn úr áli
   7. Gírskiptingunni hefur verið breytt úr 4 gíra kassa í 5 gíra
   8. Í staðin fyrir blöndung er komin Keihin bein innspýting sem er tölvustýrður með 16 bita örgjörva

Þarf bein innspýtinginn einhverja sérstaka hluti?

Sefur Paris Hilton á silki rúmfötum?  Hér er stuttur listi:

   1. Bensíntankurinn er öðruvísi og með rásir (bensínslöngur) í báðar áttir (til og frá tank)
   2. Bensínslangan verður að þola í það minnsta 42 psi þrýsting
   3. Til þess að EFI virki, að þá þarf að sérstaka bensíndælu sem dælir inn bensíninu á töluverðum hraða
   4. Þrátt fyrir að það sé ekki blöndungur, að þá er Keihin "throttle body" sem stýrir gjöfinni
   5. Örgjörvin þarf að vera í stakk gerður til að meðtaka upplýsingar frá fimm mismunandi skynjurum (stöðu bensíngjafarinnar, vatnshita, lofthita, inntaks loftþrýstingi og "tip-over angle")

Hvernig virkar "tip-over" skynjarinn?

Þið getið rétt ímyndað ykkur svipinn á fyrsta reynsluökumanninum hjá Suzuki þegar hann hefur verið að "scrub-a" pallinn og lenda svo í því að hjólið drap á sér í miðju lofti.  Lausnin er fólgin í skynjara sem tryggir að vélin haldist í gangi þrátt fyrir að hallinn fari yfir 60 gráður.  "vagg og velta" skynjarinn (eins og ég kalla hann) skilar bensíni til mótors í 20 sekúndur þegar vélarsnúningur er undir 3000 snúningum á mínútu og í 5 sekúndur ef snúningur fer upp fyrir 3000 snúninga.

Þarf RM-Z450 EFI sérstakt keppnisbensín með hátt oktana innihald?

Nei, ekki að okkar mati eru það mistök að setja slíkt bensín á hjólið.  Bein innspýting er ekki mjög hrifið af útúrtjúnnuðu keppnisbensíni og hættan er að slíkt bensín kalli bara á aukið viðhald í formi aukinna skemmda.

Er hægt að "poppa" upp hjólið án þess að eiga það í hættu að skemma virkni EFI?

Já og nei.  Við slíkar aðstæður kallar það á nýja kveikju og þetta snýst náttúrulega alltaf um hversu miklar breytingar á að gera.  RM-Z450 hjólið meðtekur púst frá þriðja aðila án þess að hiksta.  Það er hugsanlega hægt að auka þrýstinginn á hjólinu en annað er eiginlega út úr myndinni í dag.

Er örgjörvinn frá framleiðanda forritanlegur, þ.e. meðtekur hann breytingar?

Nei.  Þú þarft að kaupa þér lausn frá þriðja aðila til slíkra hluta og það er ekki ódýr lausn.

Hversu mikill þrýstingur er í bensínleiðslunum?

Um það bil 42 psi.  Hvað þýðir það í raun?  Það þýðir að þú mátt ekkert fitla við bensínleiðslurnar sem eru gerðar úr mjög sérstöku efni.  Þetta þýðir einnig að 2008 árgerðin á að þola betur bensín á suðupunkti heldur en 2007 árgerðin þar sem bensín með þrýstingu hefur hærra suðugildi en óþrýst bensín

Er batterí í RM-Z450 hjólinu fyrir EFI?

Nei, aflið fyrir innspýtinguna kemur frá sérstökum rafalli sem þeir kalla "magneto".

Fer hjólið auðveldlega í gang?

Já, en skv. framleiðanda á ekki að þurfa nema 2-3 spörk til að koma því í gang og það reyndist raunin.  Það þurfti meira segja ekki nema 1 spark þegar hjólið var orðið heitt þrátt fyrir að þurfa að nota "hot-start".

Er grindinn í RM-Z450 sambærileg og í 2007 árgerðinni?

Nei, í raun er búið að breyta henni nánast allri.  Ummálið er það sama en grindinn sjálf er lægri en sætishæðin er samt sú sama.  Þrátt fyrir þetta nær hjólið að halda Suzuki einkennum.

Hvað er það sem einkennir mest þetta hjól?

Það er fyrst og fremst þrír hlutir sem einkenna þetta hjól.

   1. Aksturseiginleikarnir - án efa þeir bestu af öllum fjórgengishjólum og Suzuki hjólin virka eins og tvígengishjól, á meðan mörg önnur fjórgengishjól virka eins og eimreiðar.
   2. Jetting - Mjög góður gangur í hjólinu og í raun ótrúlegur þar til þú varst komin yfir mitt snúingssviðið
   3. Léttleiki - þetta hjól virkar létt og raun virkar alls ekki á þig eins og þú sért að keyra 450cc sleggju.  Ótrúlega meðfærilegt hjól

Hver voru þá verstu einkenni RM-Z450 hjólsins?

Gírstöngin: Er algjört klúður.  Við höfum aldrei áður lent í jafnmörgum slæmum skiptingum á Suzuki hjóli eins og þessu.  Ef þú reyndir að gíra hratt að þá áður en þú vissir, varstu komin í hlutlausan.

Gaflarnir:  Eftir slæma reynslu okkar af 2008 Honda CRF göflum, að þá erum við almennt farnir að trúa að Showa séu búnir að tapa áttum.  Uppsetninginn er slæm og þeir eru allt of mjúkir

Öxulblokkin:  Í fyrsta sinn sem við lögðuðum keðjuna, að þá festist afturhjólið algjörlega.  Engar almennar skýringar fengust á því af hverju það hafði gerst.

Útslátturinn í vélinni:  Við lærðum að beisla kraftinn í vélinni frá byrjun og upp mitt snúningssviðið, en útslátturinn var einhvers sá furðulegasti sem við höfum upplifað og við vöndumst honum aldrei.

Að lognast út af:  Það er lærdómskúrfa fyrir beina innspýtingu og einn er það sem kallast að lognast út af.  Í raun þýðir það þegar hjólið tekur upp á því að drepa á sér að ástæðulausu, að svo virtist.  (1) á mjög lágum snúing, eins og keyra í "pittinn" og þá kokaði vélin og drap ítrekað á sér. (2) í enda á hröðum beinum köflum þegar að ökumenn slepptu gjöfinni, að þá drap hjólið á sér.  Eina lausnin er að í hvert sinn sem þú sleppur bensíngjöfinni, er að taka aðeins í kúplinguna og negla á bremsurnar.

Hversu hratt er þá RM-Z450 árgerð 2008?

Ef við berum hjólin saman á milli ára að þá var 2007 hjólið með þægilegt, auðvelt og nánast mjúkt (sem eru lykilorð fyrir hægfara).  Hver einasti reynsluökumaður fannst 2008 árgerðin töluvert hraðara frá byrjun og upp í mitt snúningssviðið.  En, og þetta hjól er engan vegin nálægt því að komast með tærnar þar sem KX450F eða CRF450 er með hælana,

Hvernig gengur svo þetta hjól?

Við værum að ljúga ef við segðum ekki að okkur þótti mjög furðulegt að hjóla á hjóli með beina innspýtingu.  Í því eru eiginleikar sem eru hreint út sagt frábærir, svo eru aðrir sem eru miður góðir.  En þessu var hægt að skipta niður.

Frábært:  Svörunin við bensíngjöfinni var hreint út sagt frábær.  Hjólið hreinlega lék sér að svara því sem þú baðst vélina um að gera.

Miðlungs:  Aflið í hjólinu er mjög svipað og í 2007 hjólinu og eins og máltækið segir að þá féll eplið ekki langt frá eikinni.  Það byrjar mjög sterkt en fjarar allt of hratt út og þar sem KX-F, YZ-F og SXF fara virkileg að fara í gang og fara í yfirgírinn, að þá er RM-Z búið að pakka saman og farið heim.

Hræðilegt:  Hjólið slær út allt of snemma, það byrjar í kringum 10000 snúninga.  Vanur hjólamaður myndi sjálfsagt passa sig á hjólinu og keyra það í samræmi við getu vélarinnar en við hinir sem viljum fá afl alla leið vorum ekki sáttir.  Ef þú fórst yfir þetta bil, að þá varð vélin nánast "spastísk" og kom með alls kyns hvelli og læti.

Hver er þá hinn raunverulegi dómur yfir aflsviði hjólsins?

Ótrúlegt en satt að þá kunnum við þokkalega við hvernig hjólið gekk.  En þetta er ekki eins og venjulegt 450cc fjórgengishjól.  Ef þú ferð beint andspænis öðrum ökumanni á annarri tegund, þá mundu tapa.  Þú þarft að skipta oft og nánast stinga þér til að ná út úr hjólinu sem þú vilt.

Lentum við í einhverjum vandamálum með hjólið?

Já, það má með sanni segja.  Við sprengdum upp húsið...  Kickstarið rakst í húsið og það hreinlega sprakk.  Eitthvað sem við áttum alls ekki von á.  Við verðum að vona að þetta hafi verið galli í þessu eina hjóli og Suzuki viti um hvað málið snerist, en stórfurðulegt.

Er 5 gíra kassinn betri en 4 gíra kassinn?

Já, í þessu tilfelli er það málið.  Sérstaklega þegar tekið er tillit til vinnslusvið vélarinnar.  En aukið úrval gíra eykur möguleika ökumannsins.  Það var tiltölulega auðvelt að finna hlutlausan, og í raun of auðvelt eins og komið hefur að framan.

Hvað hötuðum við?

•1.      Gírstönginn er grín og þarf að hafa verulega fyrir því að læra að nota þetta dót

•2.      Áreiðanleikinn sukkaði big time.  Virkaði ekki traust

•3.      "Axle blocks".  Í guðana bænum ekki treysta keðjumerkingunum.

•4.      Aflið - við vildum miklu meira

•5.      Afturbremsan - við griðlluðum hana

Hverju vorum við hrifnir af?

   1. Bensíndælan, þarft ekkert sérstakt keppnisbensín á þetta hjól takk fyrir hvað sem hver heldur fram.
   2. Að ræsa hjólið - mjög auðvelt og í raun auðveldara en Suzuki talaði um
   3. Stýrið - við hreinlega elskum Renthal FatBars
   4. Akstureiginleikarnir - eitt af einkennum Suzuki.  Frábært hvað þetta varðar og frábrugðið öllum öðrum 450cc hjólum
   5. Fótstöðurnar - Ný fótstöðurnar eru 5mm breiðari og virkuðu vel á ökumenn

Hvað fannst okkur í raun um hjólið?

Við vorum sáttir við það en við vorum ekki hrifnir.  Það getur verið hraðar, með betri dempara og áreiðanlegra.  Öll ný hönnun fer í gegnum ákveðin feril með tilheyrandi göllum og það er ljóst að þrýstingurinn á að koma fram með hjólið hefur haft einhver áhrif.  Það þarf að prófa þetta hjól miklu meira af framleiðanda.  Árgerð 2009 verður örugglega miklu betra.

Read 571 times Last modified on Wednesday, 28 December 2011 23:37