Wednesday, 13 July 2011 09:36

Brautir og ástand þeirra í dag

Written by 

Við hér á suðvesturhorninu höfum ekki farið varhluta af þeim þurrki sem hefur plagað okkur það sem af er sumri og já, ótrúlegt en satt að þá er þetta þriðja árið í röð sem það rignir bara sáralítið í júní og júlí lítur út fyrir að ætla að vera lítið betri.  Ætli drullumallarar séu ekki einn færra hópa útivistar sem vilja að það rigni reglulega og helst annan hvern dag ef vel á að vera yfir sumarið..:0)  Hér er stutt yfirlit yfir ástand brauta og vegna nálægðar minnar við suðvesturhornið, að þá munu þær brautir fá meiri umfjöllun heldur en út á landi þar sem ég hef ekki upplýsingar um ástandið þar.

Álfsnes:  Brautin er að mörgu leyti í ágætis standi eftir keppnina sem var þar um daginn en hún er þurr og er orðin hörð á köflum.  Þó svo að það blotni í henni af manna völdum eða af náttúrunnar hendi að þá þyrfti að "rippa" hana þegar hún er blaut því bleytan er bara á yfirborðinu þegar hún er í boði og við það verður brautin mjög sleip.  Þetta óskabarn motocross ökumanna á suðvesturhorninu er því að mörgu leyti líka hálfgert vandræðabarn.

Akrabraut:  Brautin í sjálfu sér í ágætis standi og aðstæður hjá þeim upp á skaga mjög góðar, komnir góðir vinnuskúrar sem hægt er að nýta til að skipta um föt o.fl., en brautin á við það sama að glíma og Álfsnes og það er brakandi þurrkur.  Brautin er líklegast ekki eins hörð og köflum eins og Álfnes og að öllum líkindum muni það vatn sem kæmi í hana ganga betur niður í jarðveginn af þeim sökum.  Engu að síður að þá dansa skagamenn regndans eins og aðrir hjólamenn á suðvesturhorninu í von um smá úrkomu sem léttir mönnum lífið í viðhaldi brautana.

Akureyri:  Tvímælalaust ein allra besta braut landsins í dag að mínu mati og mjög vel hugsað um hana.  Ég vissi til að það stæði til að bæta í hana spæni/kurli og geri ég ráð fyrir að þeir séu langt komnir með það.  Ef þú ert á leið norður að þá er það glæpur að taka ekki með sér hjól til að hjóla þarna við þær aðstæður sem norðanmenn hafa skapað þarna.  Það er ekki nóg með að þeir hugsa með ágætum um brautina, heldur er lögun hennar þess eðlis að hún er ekta motocrossbraut.  Brautin er vökvuð daglega og nú er smá rigning í kortunum fyrir norðan rétt fyrir helgi og ætti það að hjálpa til.  Engu að síður enginn ástæða til að láta ekki sjá sig á norðurlandinu næstu daga til að hjóla og ef menn hafa horft á dagatalið frá MSÍ að þá er keppnin á Akureyri helgina eftir keppnina í Sólbrekku og er því lítill tími til stefnu.  Þannig að ef menn ætla sér á annað borð að æfa sig í einni af bestu brautum landsins, að þá þurfa menn að fara að hysja sig norður og njóta þess.  Ætla ekki að gleyma að nefna að á Akureyri er einnig flott endurosvæði sem menn geta notað og einnig er mjög góð púkabraut þarna, þannig að það er eitthvað fyrir alla þarna fyrir norðan.

Bolaalda:  Brautin er í toppstandi og líklegast hefur brautin verið ótrúlega flott oftar í sumar en maður hefur haft hugmynd um.  Það er nýbúið að laga hana með jarðýtu og var það gert í síðustu viku og eru öll uppstökk og lendingar góð.  Við feðgar vorum þarna á laugardaginn og vorum við nánast einir á svæðinu við topp aðstæður og tel ég að þeir fordómar sem skapast hafa gagnvart Bolaöldu eigi ekki við rök að styðjast og stafi meira af múgæsingi en raunhæfu mati.  Það virðist einfaldlega vera í tísku að "hata" Bolaöldu á meðan brautir eins og t.d. á Króknum fá mikið lof en ég get ekki séð mikinn mun á jarðveginum í Bolaöldu og annars ágætu braut þeirra á Króknum.  Báðar brautir eiga við það að stríða eins og flest allar brautir, að ef þær verða mjög þurrar að þá eru þær með sísta móti.   Glöggt er gests augað og hafa margir þeir útlendingar sem hingað hafa komið ekki séð Bolaöldu neitt til foráttu á meðan sumir hamast við að tala hana niður.  Bolaalda er ein fárra brauta sem býður upp á ágætis byrjendasvæði og 85cc braut ásamt góðu endurosvæði með endalausum möguleikum á slóðum til að keyra í.  Eins og staðan er í dag að þá er Bolaalda ein fárra brauta sem er reglulega vökvuð.

Egilstaðir:  Ný braut tilbúin og á að nota hana í landsmóti UMFÍ.  Ég hef ekki keyrt þessa braut og stefni á að gera það í sumar en metnaðurinn er mikill hjá þeim á Egilstöðum og er það von manna þar að brautin verði hluti af mótaröðinni til Íslandsmeistara í motocrossi.  Búið er að opna brautina og um að gera fyrir þá sem eru að flakka um landið í sumarfríinu að taka hjólin með og prófa þessa braut.

Hafnarfjörður:  Á svæði AÍH er verið að ýta um nýrri braut við rallýcrossbrautina við Krísuvíkurveg.  Er þetta fyrsti vísir að motocrossbrautum á þessu svæði og búið að vera langtíma markmið þeirra í AÍH að koma þessu á koppinn.  Baráttan hefur staðið í um tuttugu ár og óska ég AÍH til hamingju með nýju brautina og óska þeim alls hins besta.  Brautin er ekki formlega opnuð og geri ég ráð fyrir að það verði auglýst nánar þegar nær dregur.

MotoMos:  Brautin er í ágætis standi og hefur hún fengið reglulegar yfirhalningar það sem af er í sumar.  Hún hefur þó átt við smá þurrk vandamál að stríða og þrátt fyrir að vera með eitt öflugasta vökvunnarkefi landsins að mínu mati, að þá er það skortur á vatni sem hamlar almennilega vökvun á brautinni en byssunar sem þeir nota til að vökva tæmir safntankinn á 15-20 mín.  Vantar MotoMos tilfinnanlega annan safntank til að getað hugsað um hana eins vel og þeir vilja í þessum þurrki sem verið hefur.  Brautin á eftir að fara í gegnum breytingar og er einfaldlega verið að bíða eftir að Ístak taki sitt hafurtask svo hægt sé að hefja þá framkvæmd, en meðal annars á að breikka brautina og bæta í hana mikið efni ásamt að breyta lögun hennar að hluta.  Spennandi dæmi hjá þeim í MotoMos.

Ólafsfjörður:  Brautin eftir því sem ég best veit í þokkalegu standi en þetta er ekta sandbraut.  Hef að vísu ekki komið þarna síðan í fyrra þegar Íslandsmeistaramótið var haldið þarna og fannst mér það miður að missa þessa braut úr mótaröðinni í ár.

Ólafsvík:  Ekki hugmynd hvernig ástandið er þarna en einhverjir sem voru þarna á ferð alls ekki fyrir löngu vildu meina að mikið væri fokið úr brautinni og vantaði töluvert af efni í hana.  Þessi annars stórskemmtilega braut má muna fífil sinn fegurri þegar hún var hluti af Íslandsmeistara mótaröðinni.

Selfoss:  Það er búið að vera mikill hugur í þeim á Selfossi og hafa þeir sem standa að brautinni þar verið að gera mjög góða hluti.  Brautin er skemmtileg þó svo að hún sé í styttra lagi og er þetta sú braut sem er hvað mest sett upp eins og supercrossbraut ef hægt er að líkja einhverri braut hér á landi við slíkt.  Búið er verið að snyrta brautina í allt sumar og meðal annars er búið að bæta við töluverðu af spæni/kurli í brautina sem á að hjálpa til að gera þessa annars ágætu braut ennþá skemmtilegri.  Þetta er sú moldarbraut á suðvesturhorninu sem tvímælalaust er best hugsað um í sumar og tek ég hattinn ofan fyrir þeim á Selfossi fyrir þann mikla kraft sem þeir hafa komið með inn í sumarið hvað brautina varðar.  Búið er að laga barnabrautina vel til og er hún mjög góð púkabraut fyrir 50 - 65cc hjól.  Á Selfossi á landsmót UMFÍ að vera næsta sumar, þ.e. 2012 og eigum við væntanlega eftir að sjá meiri breytingar á brautinni af þeim sökum og einhver hvíslaði því að mér að það ætti eftir að stækka hana af þeim sökum. 

Sólbrekka:  Þessi braut er í ágætis standi og er nýlöguð.  Það er þó einn galli á gjöf Njarðar og það er að hún er þurr og er synd að horfa á þá vinnu sem VÍR lagði í hana um síðustu helgi vera nánast að fjúka á brott vegna skorts á vatni.  En það var rigning í kortunum fyrir mánudag og þriðjudag í þessari viku og mjög líklega hefur VÍR ákveðið að láta slag standa til að bjóða ökumönnum upp á brautina í góðu standi.  En regnið hefur látið á sér standa og því miður er mikið ryk eða duft í þessari braut fyrir vikið.  Búið er að breyta aðeins í brautinni og eru komnir "table tops" í stað vúpsana á einum stað.  Í langtíma þurrki að þá er þetta ein af þeim brautum á suðvesturhorninu sem er hvað best og er ég þá að miða við án þess að njóta aðstoðar vökvunnar af mannavöldum þó svo að hún sé frábær í réttu rakastigi.

Þorlákshöfn:  Tvímælalaust ein af mínum uppáhaldsbrautum hér á landi en þetta er braut sem er hugsuð sem vetrabraut, þ.e. motocrossbrautin, og fær hún því litla athygli yfir sumarið.  Þó er þarna ágætis endurobraut sem hægt er að hjóla í og eru menn að hjóla í henni allt árið um kring.  Geri nú samt ráð fyrir að það sé alveg hægt að hjóla í motocrossbrautinni þó svo að hún sé ekki að fá neina sérstaka aðhlynningu í sumar.

Þá er þessari upptalningu lokið og að sjálfsögðu eru fleiri brautir á landinu, en þetta eru þær brautir sem komu upp í hugann hjá mér.  Næsta Íslandsmeistaramót í motocrossi verður í Sólbrekku, þannig að ég geri ráð fyrir þyngri umferð þangað á næstu dögum og þar á eftir er mót á Akureyri og einhverjir ætla sér að fara norður í þessari viku og um helgina.  Það má vel vera að ég sé hlutdrægur í umfjöllun minni um sumar af þessum brautum og er það bara allt í lagi að mínu mati.

Read 714 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:09