Wednesday, 18 May 2011 00:32

KTM búnir að "release-a" 2012 ágerðunum - KTM 250SX-F með rafstarti sem staðalbúnað

Written by 

En bætast í framleiðendur sem sýna árgerðir 2012 fyrir næsta ár og nú hefur KTM bæst við í hóp Honda og Kawasaki.  Það sem vekur einna mesta athygli vestanhafs er að KTM 250 SX-F mun koma með rafstarti sem staðalbúnað og mun það sjáflsagt auka vinsældir hjólsins enn frekar og þá sérstaklega hjá kvenkyns ökumönnum sem þykir fátt eins leiðinlegt en að sparka fjórgengishjóli í gang.  Já, það mættu fleiri framleiðendur taka "gleðihnappinn" í sína þjónustu og er þetta jákvað þróun að mörgu leyti.  Fyrir þá sem fíla þetta alls ekki, að þá verður hægt að taka þetta af til að létta hjólið og kaupa startsveif sem aukahlut.  Annað sem vekur undrun mína er að KTM hefur valið að keyra KTM 450 SX-F hjólið með blöndung.  Já, þú last rétt.  Engar breytingar hvað það varðar hjá KTM í 450 SX-F hjólinu og maður hlýtur að velta því fyrir sér hvort KTM sætti sig einfaldlega ekki við afltapið sem verður við upptöku EFI (bein innpýting) en það er þekkt að hjólin vinna betur niðri og verða viðráðanlegri en tapa afli á efri snúning og skila færri hestöflum í það heila með beinni innspýtingu en sami mótor með blöndung.  Hér fyrir neðan má sjá KTM 250 SX-F með rafstarti.

Read 710 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 01:00