Á leið minni frá Selfoss áðan, að þá renndi ég við í Bolaöldu og er helling um að vera þarna greinilegt að það á að taka brautina vel í gegn áður en hún verður opnuð. Ég gat ekki betur séð en verið væri að harpa alla brautina og það þýðir bara eitt fyrir okkur hjólamenn, minna grjót, en þetta hefur í raun þurft að gera eftir að henni var snúið við á sínum tíma en ekki verið hægt að koma í verk þá. Einnig var búið að renna yfir alla aðra hluti sem og gera beygjur klárar, þannig að þetta lítur bara mjög vel út. Það er ekki einn pollur í brautinni og ef eitthvað er, að þá þyrfti hún á smá vatni að halda.
Brautin verður opnuð á morgun, laugardag, og hefst það á vinnudegi frá kl.10 - 12 og er frítt í brautina fyrir þá sem vinna. Þeir fá jafnframt að fá smá forskot á sæluna og mega byrja að hjóla frá kl.12 - 14 en hinir sem geta ekki eða nenna ekki, geta komið og byrjað að hjóla frá kl.14 - 17. Muna að kaupa þarf miða í brautina og árspassi frá árinu 2010 er ekki lengur í gildi.
Hér má sjá mynd af brautinni eins og hún leit út áðan.
