Búið er að slétta brautina í Þorlákshöfn í dag og er hún tilbúin fyrir átök helgarinnar. Uppstökk og pallar eru í ásættanlegu standi og ætti engum að leiðast að taka á því í þessari braut. Endurohringurinn er líka í ágætis standi þó hann sé vel vúppsaður en það er bara besta æfinginn. Haukur og félagar týndu úr brautinni grjót um daginn og eru endurohjólamenn að njóta góðs af því. Minni menn á að það þarf miða bæði í motocrossbrautina og endurobrautina. Hægt að nálgast miða hjá Olís í Norðlingaholti og söluskála Skeljungs í Þorlákshöfn.