Thursday, 31 March 2011 18:27

Brautin í Þorlákshöfn opnuð - búið að laga uppstökk og lendingar

Written by 

Siggi "yfirbrautarvörður" í Þorlákshöfn hringdi í mig í dag og tilkynnti mér til mikillar gleði að búið væri að renna yfir brautina í Þorlákshöfn og hann gæti sagt með stolti að hún sé opin eftir að hafa verið full af snjó síðustu vikur.  Búið er að laga palla, bæði uppstökk og lendingar, og einnig týndi hann stærstu steina úr.  Þannig að nú er um að gera að dusta rykið af græjunum og skella bensíni á tugguna því Klaustur er eftir tvo mánuði...  Það er hvergi betur til þess fallið að æfa upp þol en að hjóla í Þorlákshöfn og skora ég á hjólamenn að nýta sér þessar aðstæður.  Siggi tjáði mér að það hugsanlega gæti komið upp eitthvað af smágrjóti eftir að brautin væri búin að vera í þessum óvenjulega "vetrardvala" og bað hann ökumenn einfaldlega að vera ekkert að keyra á þá, því það gæti orðið vont..:0)  Einnig er óvitlaust eftir að menn eru búnir að hleypa af nokkrar hringi að leggja hjólunum og labba einn hring og týna það helsta sem upp hefur komið.  Einnig kom ábending um það að klappir eru enn á sínum staða og hafa ekkert horfið í vetur, svona svo það komi ykkur ekki á óvart.  Hægt er að kaupa miða í brautina hjá Olís í Norðlingaholti og einnig í söluskála Skeljungs í Þorlákshöfn.  Eintóm gleði framundan...

Read 873 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:42