Friday, 25 March 2011 22:27

Þriðja og síðasta umferðin í íscrossi - Mývatn

Written by 

Um síðustu helgi fór fram síðasta umferð í íscrossi á vegum MSÍ á Mývatni og voru það AMS sem hélt keppnina að vanda.  Þau nýmæli voru í þessari keppni að keppt var við "flóðlýsingu" að kvöldlagi og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt var gert.  Að vanda stóð AMS sig vel og er ekkert upp á þá að klaga og hefur það því reynst mér mjög erfitt að setja niður á blað álit mitt á þessari keppni þar sem fólkið í Mývatnssveit hefur oftar en ekki hlaupið undir bagga og leyst mál við íscrosskeppnir óumbeðið.  Einnig vill maður ekki skyggja á gleði þeirra einstaklinga sem áttu góðan dag á svæðinu og líka þeim sem tryggðu sér Íslandsmeistaratitil þessa helgi.  En á endanum varð hvötin að fjalla um þessa keppni yfirsterkari heldur en að reyna að tipla þegjandi í kringum hlutina.  Í gegnum tíðina hef ég undantekningarlaus reynt að finna jákvæða punkta við allar keppnir og held ég að það sé aðeins hægt að finna eina keppni frá árinu 2007 sem ég hef gagnrýnt harkalega og var það í fyrsta sinn síðasta sumar.  Þannig að það er ekki eins og ég gangi hér um með niðurrifsstarfsemi til þess eins að uppfylla einkennilegir þarfir sjálfs míns í því skyni að vera "Mr. know it all".  En sem áhorfendi, þátttakandi og aðstandandi að þá á ég rétt á mínum skoðunum eins og hver annar einstaklingur og á þessum vef hef ég haft tækifæri til að koma þeim á framfæri og geng ég þar oft fram fyrir skjöldu því ekki er ég að fela mig á bakvið nafnlausa skrif. 

Það sem stendur upp úr hvað þessa keppni varðar er tímasetninginn...  MSÍ hefur síðust ár rekið mjög formfasta og að margra mati mjög einstrengislega stefnu í afstöðu sinni til keppnishalds hér á landi og hefur það reynst þrautinni þyngri að breyta keppnisdagskrá eða keppnisdagatali eftir að opinber dagskrá hefur verið ákveðin.  Að mörgu leyti skiljanlegt en að margra mati oft óþarfa stífni í ljósi smæðar.  Já, MSÍ hefur oftar en ekki hengt sig í regluverkið og hafa margar ákvarðanir verið óhagganlegar í skjóli þeirra.  Því verð ég að segja að ég varð mjög undrandi á þeirri ákvörðun að samþykkja fyrirvaralaust þá breytingu að íscrossið skyldi fært yfir á föstudag og það skyldi ekið í myrki í fyrsta sinn án þess að það hafi nokkurn tímann verið gert áður í íscrosskeppni og hvað þá í Íslandsmeistaramóti.  Já, þá var nú regluverkið ekki að flækjast fyrir mönnum né sú staðreynd að þetta var síðasta mót ársins og menn í harðri keppni til Íslandsmeistara.  Kannski er þetta merki um aukinn sveigjanleika af hálfu MSÍ, hver veit...

Jæja, þá er MSÍ búinn að fá sinn skammt og nú kemur að sjálfri keppninni.  Sú lýsing sem var í boði var á engan hátt ásættanleg og sáu keppendur svona 35-40% af brautinni, þ.e. ef þeir voru ekki búnir að verða sér út um ljóskastara á hjólið eða höfuðljós.  Þrátt fyrir góðan hug og mikinn vilja starfsmanna, að þá dugði þessi lýsinga engan vegin til og geta menn hrósað happi að ekki skyldi verða slys á fólki.  Ekki er einnig hægt að segja að keppendur hafi keppt á jafnréttisgrunni því sumir voru svo heppnir að vera "hardcore" enduro-ökumenn og áttu ljós með öllu tilheyrandi á meðan flestir máttu hrósa happi að geta greint brautina í þessari týru sem var í boði.  Ef menn ætluð að keppa á jafnréttisgrunni, að þá hefði átt að banna allan ljósabúnað á hjólum og höfði, en að sjálfsögðu hefði það verið glapræði m.t.t. öryggissjónamiða miðað við þá lýsingu sem var í boði.  Ekki það að ég telji að aðstæður hefðu breytt miklu hvað mitt fólk varðar, enda snýst röflið ekki um það.  En það sást augljóslega hvað það dróg vígtennurnar úr Kára Jónssyni þegar hann missti ljósið sitt út og átti hann í verulega basli eftir það.  Er þetta í fyrsta sinn sem ég veit til að Kári Jónsson detta tvisvar sinnum í íscrossi í sama hringnum, því ekki gat ég séð það nema einu sinni þegar hann dettur nánast við rásmarkið því lýsinginn bauð ekki upp á að hægt væri að fylgjast með keppendum út á ísinn þar sem þeir hurfu út í náttmyrkrið.  Já, fyrir okkur áhorfendurnar að þá voru keppendur illgreinanlegir og einu skiptin sem maður sá hvað var í gangi var þegar þeir nálguðust endamarkið og gerði ég tilraun til að fara út á braut til að fylgjast með og taka myndir.  Keppnin seinkaði líka því ekki hafði gefist tími til að setja upp brautina og voru keppendur að klára um rúmlega eitt um nóttina og þá áttu keppendur, starfsmenn/sjálfboðaliðar eftir að gera sitt, þ.e. ganga frá o.fl.

Ég geri mér fulla grein fyrir að halda svona keppni er ekkert grín og hingað til hef ég alltaf hrósað þeim á Mývatni fyrir framtakssemi og alltaf hefur verið að gaman að koma í sveitina norður.  Því hefur það reynst mér erfitt að setja þetta niður á blað og gagnrýna keppnishaldið því ég veit það manna best sjálfur að þetta er meira og minna allt unnið af hugsjón og í sjálfboðavinnu.  Fólkið á svæðinu reyndi að gera sitt besta og viljinn til að klára þetta með sóma var svo sannarlega til staðar, eins og alltaf.  En þessi lýsing dugði bara engan vegin til.  Ekkert af því að halda íscrosskeppni við þessar aðstæður, en að gera tilraun til að halda fyrstu keppni til Íslandsmeistara í flóðlýsingu átti ekki við núna og nær hefði einfaldlega verið að halda bikarmót í því skyni að prófa þetta í stað þess að gera þetta í síðustu umferðinni í Íslandsmeistaramóti.  Sem betur fer breyttu úrslitin ekki lokastöðu til Íslandsmeistara, en ef vel er rýnt í regluverk MSÍ að þá hefði verið auðvelt að rengja öll úrslit og kæra keppnina.  Margir keppendur hreinlega spurðu sig þeirra spurningar í síðustu moto-inum hvað í andskotanum þeir væru að gera í þarna, en sjálfsagt er þetta ein sú keppni sem á eftir að lifa hvað lengst eftir í minningunni vegna þess hversu sérstök hún var og sjálfsagt eftir ein tíu ár, að þá verður þetta "the keppnin". 

Ein ábending til AMS varðandi verðlaunaafhendinguna, en það er fáheyrt að keppendur skuli þurfa að borga sig inn á dansleik og mat til þess eins og fá verðlaun sín eftir mót eins og tíðkast hefur á síðasta móti ársins hin síðari ár.  Ferðin ein og sér norður kostar sitt og bráðabirgðatölur hjá mér sýna að hún liggi nú þegar í kringum 70 þúsund krónur fyrir utan vinnutap tveggja einstaklinga heilan dag og brotthvarf sonar úr skóla svo hægt væri að taka þátt í keppninni um kvöldið.  Ef maturinn og dansleikurinn hefði bæst við fyrir okkur þrjú í því skyni að vera viðstödd verðlaunaafhendingu á laugardagskvöldið, að þá hefði kostnaður vegna ferðarinnar farið í hátt í 100 þ.kr. og jafnvel meir.  Þetta kostar nóg samt og ekki gleyma þeirri staðreynd að við erum á ferð yfir hávetur og keyrum langleiðina í myrkri.

Þá er þessi romsa kominn í loftið.  Þetta er mitt álit og skoðun á síðust keppni ársins og fólki er frjálst að vera ósammála mér og er það bara hið besta mál, enda ég er bara einn af mörgum sem eru viðloðandi sportið.  Ég tók hátt í 500 myndir en veit ekki hvort ég mun setja þær á vefinn. en annars urðu úrslit helgarinnar eftirfarandi:

Vetrardekkjarflokkur:

  1. Daði Erlingsson
  2. Jón Kristján Jacobsen
  3. Kári Jónsson

Opin flokkur:

  1. Jón Ásgeir Þorláksson
  2. Þorgeir Ólason
  3. Ragnar Ingi Stefánsson

Kvennaflokkur:

  1. Signý Stefánsdóttir
  2. Ásdís Elva Kjartansdóttir
  3. Andrea Dögg Kjartansdóttir

Unglingaflokkur:

  1. Guðbjartur Magnússon
  2. Ingvi Björn Birgisson
  3. Ásgeir Hall

85cc flokkur:

  1. Adam Helgi Jóhannesson
  2. Kristján Helgi Garðarsson
  3. Óliver Örn Sverrisson

Lokastaða til Íslandsmeistar eftir þrjár umferði var eins og hér segir:

Vetrardekkjarflokkur:

  1. Kári Jónsson
  2. Daði Erlingsson
  3. Sigurður Bjarnason

Opin flokkur:

  1. Þorgeir Ólason
  2. Jón Ásgeir Þorláksson
  3. Ragnar Ingi Stefánsson

Kvennaflokkur:

  1. Signý Stefánsdóttir
  2. Ásdís Elva Kjartansdóttir
  3. Andrea Dögg Kjartansdóttir

Unglingaflokkur:

  1. Ingvi Björn Birgisson
  2. Ásgeir Hall
  3. Guðbjartur Magnússon

85cc flokkur:

  1. Adam Helgi Jóhannesson
  2. Kristján Helgi Garðarsson
  3. Óliver Örn Sverrisson

Að lokum vil ég þakka fyrir afstaðið tímabil í íscrossi og óska öllu nýkrýndum Íslandsmeisturum til hamingju með árangurinn í ár og titillinn. 

Read 696 times Last modified on Thursday, 29 December 2011 00:36