Stjórn AMS hefur ákveðið að gera þá breytingu á dagskrá Mývatnsmótsins 2011 að fella niður keppni í snocross vegna fyrirsjáanlegs þátttökuleysis, þess í stað verður keppt í snjóspyrnu við Skútustaði kl: 15.00. Mæting keppenda er kl: 14.30, skráning á staðnum.
Nú er um að gera fyrir alla með nítró, túrbó, 3 cylindra og alla hina að mæta og sýna sig! Þar með lítur út fyrir að snjócrossið sem keppnisform sé dautt í bili hér á landi, R.I.P.