Hér má sjá lauslega þýðingu á nýja KTM 350 SX-F hjólinu, hjólinu sem hefur nú þegar skráð sig á spjöld sögunnar fyrir að hafa unnið heimsmeistaratitil á sínu fyrsta ári í FIM MX GP mótaröðinni. Þó svo að flestir séu sammála um að hjólið sé ekki nema á bilinu 15-25% og ökumaður sé það sem skiptir höfuðmáli, að þá hlýtur það að segja eitthvað um hjólið að það skuli ná þessum árangri á fyrsta keppnisári sínu í jafnsterkri keppni eins og FIM mótaröðin er. Ég tek það skýrt fram að þessi þýðing endurspeglar ekki mínar persónulegu skoðanir á hjólinu þar sem ég hef ekki prófað það sjálfur, heldur er þetta lausleg þýðing úr Motocross Action Magazine sem hafa nú ekki verið þekktir að liggja á skoðunum sínum og sýnist nú sitt hverjum hvort þær sé réttar eða ekki. Hvað um það, ég ætla hér að kasta þessu hér fram og vona að lesendur virði mig frekar fyrir vikið að setja þetta fram heldur en ekki, en ég hef þýtt lauslega greinar frá þessu tímariti síðan 2007 og hefur það aldrei skipt máli hver framleiðandinn er.
Stóra spurningin er, mun KTM 350 SX-F breyta motocrossheiminum? Nei, aldeilis ekki. Í raun er KTM 350 SX-F eingöngu viðbót í flóru í motocrosshjóla. Það mun á engan hátt hreinsa út 450cc motocrosshjól af yfirborði jarðar. Það mun heldur ekki koma með nýtt tímabil í flokki hjóla í miðstærð véla. Þetta er ekki byltingarkennt hugmynd og ef svo er að þá hafa aðrir framleiðendur verið á undan með slíkar hugmyndir. Þetta er einfaldlega enn eitt hjólið til að fylla upp í ákveðið gap sem myndast hefur á milli 250cc hjóla og 450cc hjóla.
Hverjir munu helst kaupa KTM 350 SX-F hjólið? Í ljósi þess hvernig hjólið krefst þess að vera ekið, sem við munum skýra nánar að bragði, að þá er það ekki "plug-and-play" hjól sem kemur í stað 450cc hjóla. Munurinn á KTM 450 SX-F og KTM 350 SX-F er svo mikill að hægt er að segja að það sé dagur og nótt á milli þeirra sem kom á óvart í ljósi þess að þau eiga margt svo sameiginlegt. Í raun teljum við að það séu þrír mismunandi markaðshópar sem myndu kaupa þetta hjól.
1. Gamalreyndir keppendur: Fyrir gamalreynda keppenda sem vildi heldur keppa á 250cc hjóli vegna léttleika, en teldi sig ekki hafa efni á að missa þessi 20 hestöfl sem munar á milli 250 og 450, að þá býður 350 SX-F hjólið upp á það sem mjög hraðskreitt 250 hjól hefur upp á að bjóða með tog á við hægfara 450 hjól.
2. "Skemmti" ökumenn: Þegar þú ert ekki bundin af reglum í þínu landi vegna t.d. keppna og þú ert einfaldlega að leita að skemmtilegu hjóli til að hjóla á, að þá er 350 SX-F eins og að eiga 450 á lágum snúning á móti 250 á háum snúning.
3. Undirbúningur fyrir 450: Fyrir ökumann sem er að koma beint úr 250 flokk yfir í 450 flokk, að þá býður 350 SX-F hjólið hátt snúningsvið sem hann þekkir fyrir úr 250 hjóli án þess að rífa af manni handleggina vegna afls og þyngdar eins og 450 hjólið á til.
Er 350 SX-F útborað 250 hjól eða minnkað 450? Hvorugt. 57 kg., fimm gíra, DOHC, fjögurra ventla 349,7cc mótorinn deilir sömu hugsun varðandi hönnun og 250 SX-F hjólið í samanburði við þyngd, þéttleika og hönnun, en það er það eina sem þau eiga sameignilegt. Enginn hlutur í mótor er nákvæmlega eins og í 250 hjólinu.
Svo koma einhverjar útlistingar um stærð simpils, halla, o.fl. miðað við 250 og 450 hjólið sem ég nenni ekki að útlista hér, bara eitthvað mambo jambo kjaftæði sem skiptir okkur engu máli.
Er KTM 350 SX-F hjólið hraðara en 450 SX-F hjólið? Nei, ekki einu sinni nálægt því. Samt er ekki hægt að halda fram að þú getir ekki farið hraðar á 350 SX-F hjólinu en 450 SX-F. En ef tíminn myndi standa kyrr og einöngu yrði horft á afköst, að þá hefur 350 SX-F mótorinn ekkert í 450 mótorinn að gera.
Hversu mörg hestöfl skilar 350 SX-F mótorinn í DYNO? Mótorinn skilar um 46,94 hestöflum við 12.200 snúinga.
Hvernig er aflið í samanburði við 250 SX-F og 450 SX-F? Það þarf nú engan snilling til að reikna þetta út. 250 SX-F skilar um 38,25 hestöflum á móti 46,94 hestöflum á 350 SX-F á meðan 450 SX-F mótorinn skilar 53,92 hestöflum. Með rúnun, að þá er 8 hestafla munur á milli 250 í 350 og síðan aftur 8 á milli 350 og 450.
Hvað getum við lært af skoða DYNO á milli 250, 350 og 450 SX-F? Í fyrsta lagi ef þú ert ekki bundinn af reglu varðandi stærð vélar í keppni, að þá er engin ástæða til að kaupa 250cc fjórgengishjól aftur. Af hverju ekki? Af því að dyno kúrfan, snúnings- og vinnslusvið KTM 350 SX-F er sambærilegt við KTM 250 SX-F að viðbætu 6-10 hestöflum á öllum stigum aflkúrfunnar. I raun hefur 350 sömu kúrfu og 250 hjólið en með meira afl en 250F. Þegar kemur að því að bera saman 350 SX-F á móti 450 SX-F, að þá yfirgnæfir 450 hjólið 350 frá 5.000 snúningum. Hvergi í allri aflkúrfunni skilar 350 SX-F fleiri hestöflum en 450 SX-F. Hámark hestafla í 350 SX-F hjólsins er í 12.200 snúningum á móti 8.200 snúningum í 450 hjólinu. Stærðfræðilega er KTM 350 SX-F á móti 250 SX-F það sama og 450 SX-F er á móti 350 SX-F.
Hversu gott er aflsvið á miðlungsstærð KTM 350 SX-F? Það er gott og það er slæmt. Það er fókusað en samt ruglingslegt. Það er, eins og við er að búast af mótor sem á að sameina tvo heima, ruglingslegt aflsvið. Eða svona eins og Dr. Jekyll og Mr. Hyde hefði búið þetta til. Fyrsta einkenni/karakter þess er að ef við lítum á það frá "bottom into mid-range", að hefur það mjög gott togsvið. Á braut upplifir þú það eins og 450, en það virkar ekki ósvipað eins og 1998 árgerð af Yamaha YZ400. Mjúkt, gripmikið, ánægjulegt og milt. Ekki hraðskreitt, en notendavænt. Það virkar eins og 450 þar til þú prófar 450 hjól á sama snúning, að þá áttarðu þig á að þú ert á 350. Annað einkenni þess er að hjólið fer upp á mjög háan snúning. Ólíkt 450, að þá skilar 350 SX-F hjólið mest af aflinu þegar snúningsvið vélarinnar er komið yfir 10.000 rpm. Þar sem það skilar hvað mest eftir því sem vélin fer á hærri snúning, að þá verður þú að keyra það á háum snúning. Því neðar sem þú ferð í snúning, því meira taparðu af afli og vinnslan verður ekki eins góð.
Hvernig er best að hjóla á kTM 350 SX-F hjólinu? Einfaldlega í botni... Hugsaðu eins og þú sért að hjóla á 250cc fjórgengishjóli og hjólaðu í samræmi við það. Láttu vélina snúast. Ekki skipta fyrr en þú hittir á þessa 12.200 snúninga. Láttu það aldrei "lurka" niður í togkúrfuna, nema ef skyldi vera frá til og frá startlínunnar. Þetta hjól mun ekki koma í stað 450cc motocrosshjóla. Þetta er nær því að vera eins og "works" 250cc hjól fyrir utan að vera ekki leyfilegt í 250 flokknum.
Geturðu endurstillt/-forrita kveikjuna? Já. Það sem betra er án hugbúnaðar eða ferðavélar, að þá er búið að forrita þrjú mismunandi kerfa í hjólið. Það eina sem þú þarft að gera er að kaupa aukahnapp til að geta virkt það. Mismunur á milli þessara þriggja mismunandi kerfa er, agressívt, staðlað og mjúkt. Við notuðumst við agressívt kerfi þar sem við töldum það henta best miðað við gírhlutfall hjólsins.
Hversu þungt er KTM 350 SX-F hjólið? KTM heldur fram að hjólið sé í kringum 104,6 kg en á viktinni hjá okkur reyndist hjólið vera um 107,7 kg án bensíns. Í hinum fullkomna heimi að þá ætti þetta hjól að vera um 100 kg. Af hverju, jú við að búa til aflminna hjól en 450, að þá ættirðu að geta nýtt þér grindina úr 250 hjóli þar sem hún þarf ekki að vera eins sterk.Hvaðan kemur þá þyngdin? 107,7 kg þyngd 350 SX-F er ekki létt hjól. Af hverju? Gefum okkur að hefðbundið 250F hjól sé um 100 kg. Til að gera það að 350 hjóli, að þá þarftu að styrkja eitt og annað, vera með stál kúplingskörfu, sterkari grind og stærra afturdekk. Þar með ertu komin með tæp 3 kg ofan á þyngd 250F hjóls fyrir utan að þá eru öll hjól sem eru með beina innspýtungu 1,5 kg þyngri en hjól með blöndung. Svona til að toppa þetta að þá hefur KTM sett í hjólið rafstart sem veldur þessum mismun þó mótorinn sé minni en 450 að þá þarf hjólið batterí, startbúnað og startara. Til samanburðar að þá er 450 SX-F hjólið 109,9 kg.
Hvað var besta stilling að framan (framköflunum): Við settum hjólið eins upp og við gerðum við 450 SX-F hjólið. Við skiptum út 0,48 gormunum í 0,50 gorma þar sem okkur finnst gormarnir sem koma með hjólinu allt of mjúkir. Einnig fiktuðum við með olíumagn í dempurunum. Fyrir "hardcore racing" að þá mælum við með eftirfarandi uppsetningu (þessi kafli verður óþýddur):
Spring Rate: 0.50 kg/mm (0.48 kg/mm stock)
Oil height: 365cc (375cc stock)
Compression: 12 clicks out
Rebound: 12 clicks out
Fork leg height: 5mm up (at the first line)
Note: In stock trim the forks hang down and lose a lot of travel. We ran stiffer springs to keep the forks higher an suggest that if you are 79,5 kg or more that you do the same thing (then lower the oil height to iron out the midstroke harshness).
Linkur eða ekki linkur? KTM 250/350/450 SX-F koma með link á meðan KTM 125/150/250 SX tvígengishjólin koma með PDS kerfi sem er án link. Það er ekkert leyndarmál að KTM vildi ekki fara japönsku leiðina og nota link en þeir einfaldlega áttu engra annara kosta völ. Þrátt fyrir að PDS kerfi þeirra KTM manna hafi þróast í mjög gott kerfi, að þá var almenningsálitið ekki með þeim í þessum efnum og þeir neyddust til að taka upp linkinn. Þegar afturhjólið hreyfist upp, að þá neyðir risið demparann til að vinna hraðar, jafnvel þó að afturhjólið er ennþá að hreyfingu á jöfnum hraða. En hvað haldið þið? KTM PDS kerfið virkar nákvæmlega eins. Hver er þá munurinn? Aðal munurinn er að með linknum að þá er hægt að fínstilla þetta betur og fjöðrunin getur tekið meira og verið mýkri. Á móti að þá er PDS kerfið (án links) léttara, auðveldara að vinna með og virkni gorma er öðruvísi.
Hvað eru bestu stillingar á afturdempara? Að okkar mati var afturdemparinn hastur og það þrátt fyrir að skarta link. Okkur lausn varað skipta út 5,4 gormnum í afturdemparanum fyrir 5,7 kg/mm úr KTM 450 SX-F hjólinu. Þetta hélt betur á móti og gerðu okkur betur kleift að ná jafnvægi í grindinni í samræmi við stífari gorma að framan.
Fyrir þá keppnisfólk að þá mælum við með eftirfarandi uppsetingu (og nú allt aftur á ensku):
Spring rate: 5.7 kg/mm (5.4 kg/mm stock)
Race sag: 100 mm
Hi-compression: 2-1/4 turns out
Lo-compression: 15 clicks out
Rebound: 12 clicks out
Notes: Although KTM has often recommended 110 mm or more of the sag, but we think 100 mm is better.
Hvernig eru svo aksturseiginleikar KTM 350 SX-F hjólsins? Allir þeir sem prófuðu elskuðu hversu nákvæmt hjólið virtist vera. Um leið og við vorum búnir að skipta út gormum að framan og aftan, að þá gátum við hækkað hæð gaflana í samræmi við það hvernig við vildum að hjólið beygði. Um leið og þú ert komin með rétt jafnvægi, að þá fer hjólið í gegnum beygjur eins og þú sért með það fast á járnbrautateinum. 2011 módelin eru öll miklu rennilegri, minni og lægri en fyrirrennari þeirra. KTM hefur farið frá botninum til toppsins með að gera lítilsháttar breytingar á milli ára á hverju módeli. Við erum hrifnari af stálgrindinni en álgrind.
Hvað gerðum við til að bæta 350 SX-F hjólið? Við endurforrituðum kveikjunni í agressíva en við áttum ekkert við "fuel mapping". Gírhlutfallið - við breyttum gírhlutfallinu með því að gíra það niður um eina tönn, eða úr 50 í 51. Sumir kusu meira að segja að gíra það niður um tvær tennur og fór í 52 í stað 50. Bilið á milli gírana er of mikið og átti hjólið stundum í erfðiðleikum að skipta úr öðrum í þriðja gír og það þurfti dágóðan kafla til að ná hjólinu á þann snúning að það sló út. Að gíra hjólið niður um eina tönn hjálpaði að skipta úr öðrum í þriðja og gerir það að verkum að þú ert fljótari að nálgast útsláttinn á hjólinu og þar er hjólið að vinna hvað best. Að gíra það niður um tvær tennur nýtir hjólið þriðja gírinn mun betur. Pústkerfi - við fengum að láni frá Mike Alessi 4.1 FMF pústkerfi og það svínvirkaði. Það bætti aflsviðið verulega og varð til að þeir sem fór niður um tvær tennur (52) enduðu í 51. Gormarnir - allir þeir sem prófuðu vildu stífari gorma, bæði að framan og aftan. Bensínlok festingarnar - við skárum af haldið og afar pirrandi KTM bensínloki til að koma í veg fyrir læsinguna sem vill verða. Ef það er gert rétt, að þá þarftu ekki lengur tvær hendur til að losa það. Frárennsli úr vatnskassa - núverandi uppsetning er þannig að umfram rennslið fór beint á pípuna. Slæm hugmynd. Við lengdum í frárennslinu þannig að það færi undir vélina. Olíulok - ef þú ert í motocrossskóm með smellum að þá geta smellurnar krækt í svarta olíulokið og losað það. Þú hefur þrjá möguleika: a) að klippa af lokinu vængina sem hjálpa þér að ná gripi til að losa lokið. b) Skipta yfir í állok. c) Kaupa ný stígvél.
Hvað hötuðum við við hjólið?
1) Frárennslis slönguna úr vatnskassanum: Þegar vatnið frussaðist út úr kassanum vegna yfirfalls, að þá myndast mikil gufa þar sem það lenti á pípunni.
2) Olíulokið: Olíulokið losnaði af hjá okkur í miðju moto-i. Við skiptum því út fyrir minna lok sem fékkst hjá KTM.
3) Karfan utan um vatnsdæluna: Við eyðilögðum vatnsdælinu þegar einn af okkur datt á hjólinu og við það skemmdist karfan sem aftur á móti orsakið mikin vatnsleka.
4) "shock preload ring": Hötuðum það. Það er ennþá erfiðara að hreyfa við því en á hjólunum frá árinu á undan. Þessi nylon hringur virðist aflagst mjög auðveldlega og fyrir einhverjar sakir er mjög erfitt að hreyfa hann. KTM segir að við eigum ekki að nota hamar til að breyta stillingunni en við áttum engra annara völ en nota slíkt til þess að geta hreyft hann til.
5) Gírhlutfallið: Þeir hljóta að virka fyrir einhvern en svo sannarlega gerðu þeir það ekki fyrir okkur. Allt of mikið bil á milli annars og þriðja gír.
6) Þyngd: Þetta væri ótrúlegt hjól ef það væri 100 kg og mjög gott ef það væri um undir 104,5 kg en 107,7 kg er ekki fullnægjandi að okkar mati.
Hvað vorum við ánægðir með?
1) "Gas line quick-release": Þökk sé einum takka að þá er hægt að losa bensíntankinn frá grindinni á mjög fljótvirkann hátt.
2) Að hægt sé að kaupa "kickstart": Ef þú vilt léttara 350 SX-F hjól, að þá getur þú sett á hjólið "Kickstart" og fjarlægt allt þetta rafmagnsdót sem tengist startaranum.
3) "multi purposing": Er ekki alveg að skilja þetta, svo ég set það hér óþýtt. The water pump, counter balance and timing chain gear are all gear-driven from the primary gear.
4) Bensíntankurinn: Tankurinn er stærri heldur en tankar hjóla frá samkeppnisaðilum og við fílum það.
5) Stálgrind: Stálgrindin er 5mm lægri en sú sem var eldri (hér eiga þeir sjálfsagt við 250 SX-F hjólið) og með 15 mm víðari fótstanda. KTM hefur farið í gegnum 24 mismunandi útgáfur og hvað þyngd varðar, að þá er KTM stálgrindin um 1/2 kg léttari en sambærileg álgrind.
6) Kúplings stálkarfa: Þó þetta virki fyrir sumar eins og ekki mjög svo tæknilegt val hjá KTM að þá vorum við mjög hrifnir af þessu. Þessi stálkarfa utan um kúplinguna er byggð til að endast og það sem meira er, þyngdin mun ekki virka eins og búið sé að setja þyngra "flywheel".
7) Að lyfta hjólinu: Loksins, KTM hefur útbúið höldur sem auðvelda ökumanni að lyfta hjólinu á t.d. stand.
8) Aksturseiginleikar: Ekkert höndlar orðið eins vel og KTM hjól. Fyrir fimm árum síðan sögðum við að ekkert höndlaði eins illa eins og KTM...
9) Hljóð: Miðað við FIM tveggja metra hljóðtest, að þá var hámarks hávaði um 115,7 dB.
Og hvað höldum við í raun um þetta hjól? Einu sinni var lítil stúlka sem hét Gullbrá. Eftir að hafa brotist inn og tekið sér bessaleyfi til að taka það sem henni langaði að taka og borða matinn að þá sagði hún eftir að hafa smakkað grautinn í fyrstu skálinni. "Þessi grautur er of heitur". Svo hún smakkaði grautinn í næstu skál og sagði, "Þessi grautur er of kaldur". Svo hún smakkaði grautinn í þriðju skálinni og sagði, "Ahhh, þessi grautur is akkúrat eins og hann á að vera" og borðaði allan grautinn í skálinni. Hvernig þetta tengist tilraunaakstri þessa hjóls er mér hulin ráðgáta, en þeir enda þetta á þessun nótum. Já, spurning hvort að höfundur greinarinnar í MXA blaðinu hafi verið komin á LSD tripp..:0)
Jæja, þá er þessari upptalningu lokið og ég endurtek að þetta endurspeglar ekki skoðun mína á þessu hjóli sem ég tel að sé snilld hvað mótorstærð varðar. Ég endurtek líka að þýðingin er lausleg og ég tek ekki ábyrgð á að hún sé 100%, en hei... Virðið mann fyrir verkið..:0) Hér er svo smá myndband sem sýnir hjólið í "action".